Sumarstarf miðstigs
Frístundamiðstöðin Kringlumýri býður upp á frístundastarf í sumar fyrir börn sem ljúka 5. – 7. bekk nú í vor. Um er að ræða viku námskeið með áherslu á þemun útivist og hreyfing, framkoma og tjáning, sjálfstyrking og vináttuvika. Námskeiðin eru opin öllum óháð búsetu.
Námskeiðin fara fram í félagsmiðstöðinni Þróttheimum, Holtavegi 11 og Tónabæ. Safamýri 28. Námskeiðin eru frá kl. 09:00 – 14:30 og eru fjórir til fimm dagar.
Verð á námskeiði:
5 daga námskeið 4.900 krónur
4 daga námskeið 3.920 krónur
Skráning hefst 15. maí kl. 10 á sumar.fristund.is
Recent Posts