Tómstundir í Guluhlíð

Við í Guluhlíð höfum unnið hörðum höndum að því að efla tómstundastarf okkar frá degi til dags og sníða þær að þörfum barna okkar. Tómstundastarfið hefur reynst vel fyrir starf okkar og hefur vakið mikla lukku fyrir bæði börn og starfsfólk.

Íþróttir

Íþróttir eru 1-2x í viku frá 14:10-15:30. Þar rölta börn og starfsfólk saman yfir í íþróttasal Klettaskóla og skemmta sér saman. Þar er farið í margs konar íþróttir á borð við þrautabrautir, boltaleiki og fleiri skemmtilega leiki. Börnin hafa verið afar ánægð með þessa tíma og þykja þrautabrautirnar einna skemmtilegastar þar sem eitthvað er að finna fyrir alla.

Listasmiðja

Listasmiðja Yukie er einu sinni í viku í Guluhlíð. Listasmiðjan er starfræk í sérstöku herbergi í Gula húsinu sem er einungis opið þegar að listasmiðja á sér stað. Þarna fá börnin tækifæri til að sýna sköpunargleði sína og listræna hæfileika. Í listasmiðjunum er hægt að gera alls kyns hluti t.d. búa til slím, mála myndir, teikna, leira og margt fleira. Starfsfólk Guluhlíðar er margt með listabakgrunn og hefur staðið sig vel í að skipuleggja ýmis konar skemmtilegt inni í listakrók, koma með hugmyndir og hvetja börnin áfram.

Tónlist og skátastarf

Í tónlistartímum þá söfnum við öllum hljóðfærum okkar saman t.d. hljómborð, hristur og trommur saman í einu sjónvarpsherberginu okkar. Starfsmaður stýrir svo tónlistartímanum og leiðbeinir börnunum áfram í takti. Eftir að hafa spilað saman á hljóðfærðin kveikjum við í endann oftast á eitthverjum skemmtilegum barnalögum á Youtube og syngjum saman í endann.

Í skátastarfinu er markmiðið að börnin fái tækifæri til að upplifa skátastarf á eigin forsendum, verja tíma í náttúrunni og takast á við ævintýraleg skátaverkefni við þeirra hæfi. Gulahlíð er í samstarfi við skátanna og erum við með skátafundi einu sinni í viku.

Popp og bíómynd

Eftir viðburðaríkan skóladag er stundum líka gott að mæta í Guluhlíð og slaka á yfir bíómynd. Gulahlíð vinnur eftir því gildi að vera mestmegnis skjálaust frístundaheimili en í lok vikunnar gerum við alltaf undantekningu. Þá poppum við popp fyrir börn og starfsmenn, drögum fyrir gardínurnar og höfum það kósý yfir sjónvarpinu. Peppa pig, Cocomelon, Pokemon og Dýrin í Hálsaskógi eru vinsælastar í myndavali.

Gönguferðir og bakstur (óháð dögum)

Í Guluhlíð hvetjum við eindregið til að fólk skelli sér út í göngutúr ef veður er við hæfi. Með göngum er markmiðið að stuðla að aukinni útiveru barna og starfsmanna. Alla jafna eru í boði skipulagðar gönguferðir eða frjálsar ferðir. Börnunum er þá raðað saman í hópa og fara með starfsmönnum í gönguferðir þar sem alls kyns ævintýri eiga sér stað. Náttúruperlurnar Nauthólsvík og Öskjuhlíð eru nálægt og því stutt að fara í vettvangsferðir sem bjóða upp á skemmtilegt umhverfi og upplifun. Í lok gönguferða er gjarnan farið inn í hlýjuna og hellt upp á kakó fyrir bæði börn og starfsmenn sem er mjög vinsælt. Við eigum einnig alltaf til hráefni á alls konar bakstur og hvetjum starfsfólk og börn til að baka saman ef stemning er fyrir því. Vöfflur, kókoskúlur og pizzasnúðar eru oftast vinsælustu valkostirnir. Við hvetjum börnin til að taka þátt í bakstrinum hvort sem það er að koma með hugmyndir, setja saman hráefni, hnoða deigið eða leggja á borð.

Skemmtilegar myndir 2020-2021

Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt