Upptakturinn 2022 – Tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna.

 In Askja, Buskinn, Bústaðir, Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Forsíðu frétt, Hofið, Laugó, Tónabær, Þróttheimar

Upptakturinn slær taktinn á nýju ári 2022

Með Upptaktinum, Tónsköpunar verðlaunum barna og ungmenna, er ungu fólki gefið tækifæri til að senda inn tónsmíð eða drög að henni og vinna markvisst úr hugmyndum sínum með fulltingi listnemenda og listamanna. Afrakstur þeirrar vinnu má sjá og heyra á tónleikum Upptaktsins í Hörpu á opnunardegi Barnamenningarhátíðar þann 5. apríl 2022 í Hörpu.
Þar leika atvinnuhljóðfæraleikarar tónverkin og ungmennin sitja á meðal áheyrenda.

Upplýsingar
Upptakturinn varð til árið 2012 og er samstarfsverkefni Hörpu, Barnamenningarhátíðar, RÚV og Listaháskóla Íslands og er opinn 10 –15 ára ungmennum.

Áhersla er lögð á að hvetja börn og ungmenni til að semja sína tónlist og styðja þau í fullvinnslu hugmyndar. Frá upphafi hafa alls verið send inn um 400 tónverk eftir um 290 ungmenni, en ár hvert velur dómnefnd skipuð fagfólki 12 – 13 verk úr innsendum hugmyndum til frekari úrvinnslu. Ungmennin sem komast áfram taka þátt í tónlistarsmiðju með nemendum Skapandi tónlistarmiðlunar við Listaháskóla Íslands auk þess að vinna að tillögum að útsetningum verkanna undir leiðsögn nemenda Tónsmíðadeildar Listaháskóla Íslands.

Að þessu ferli loknu höfum við eignast ný tónverk sem við getum flutt á tónleikum og varðveitt síðan með upptöku (sjá nánari upplýsingar um RÚV hér neðar).

Markmið Upptaktsins eru þríþætt

Sköpun : Að stuðla að tónsköpun ungs fólks og hvetja börn og ungmenni til að semja eigin tónlist.

Skráning : Að aðstoða börn og ungmenni við að fullvinna hugmyndir sínar í vinnusmiðju og varðveita þannig tónlistina.

Flutningur :  Að gefa börnum og ungmenni tækifæri á að upplifa eigin tónlist í flutningi fagfólks við kjöraðstæður á tónleikum í Hörpu.

Reglur

  • Öllum börnum og ungmennum í 5. – 10. bekk er heimilt að taka þátt í Upptaktinum og senda inn tónsmíð óháða tónlistarstíl.
  • Þau sem komast áfram taka þátt í vinnustofu með fagfólki.
  • Lengd tónverks skal vera 1-5 mínútur að hámarki. Verkið skal vera einleiksverk eða samleiksverk fyrir allt að 5 flytjendur.
  • Hugmyndin skal berast fyrir settan skiladag febrúar 2022 á netfangið upptakturinn@gmail.com með nafni höfundar, aldri, símanúmeri, tölvupóstfangi, grunnskóla, titil verks og verkinu á nótum eða mp3 hljóðskrá.

 

Tónleikar í Hörpu 5. apríl 2022

Þriðjudaginn 20. apríl verða tónverkin flutt á metnaðarfullri og glæsilegri tónleikadagskrá í Hörpu en tónleikarnir eru hluti af opnunarhátíð Barnamenningar í Reykjavík. Hljóðfæraleik og framkvæmd annast fagfólk í tónlist.

 

Tónsköpunarverðlaunin

Öll verkin sem flutt verða á tónleikunum hljóta tónsköpunarverðlaunin, Upptaktinn 2022.

 

Heimasíða og Facebooksíða
Upplýsingar um Upptaktinn á íslensku og ensku má finna á:

 

KrakkaRÚV
Tónverkin og viðtöl við þátttakendur frá árinu 2021:  https://www.ruv.is/utvarp/spila/upptakturinn-2021/31738/9elld1?term=Upptakturinn&rtype=radio&slot=7

 

Listveita List fyrir alla

Á Listveitunni má finna upptökur af tónleikum Upptaktsins frá árinu 2018 – 2021

https://veita.listfyriralla.is/

 

Samstarfsaðilar
Upptakturinn er á vegum Hörpu í samstarfi við Barnamenningarhátíð, Tónlistarborgina Reykjavík, RÚV og Listaháskóla Íslands.

Í samstarfi
Tónlistarmiðstöð Austurlands

Garðabær

Seltjarnarnes
Kópavogur
Norðausturland

 

Nánari upplýsingar

Verkefnastjóri Upptaktsins er Elfa Lilja Gísladóttir sem veitir allar nánari upplýsingar í gegnum upptakturinn@gmail.com og síma 699-6789.

 

 

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt