Viltu vekja athygli á gróskumiklu frístundastarfi á vegum Reykjavíkurborgar?

 In Forsíðu frétt

Tilnefndu til hvatningarverðlauna fyrir frístundastarf

Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs 2019 vegna framsækins frístundastarfs og samstarfsverkefna í Reykjavík.

Viltu vekja athygli á gróskumiklu frístundastarfi á vegum Reykjavíkurborgar? Veistu af metnaðarfullu þróunarverkefni, skemmtilegum tilraunum, áhugaverðum samstarfsverkefnum frístundastarfs við grunnskóla eða leikskóla? Viltu veita starfsfólki í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkur viðurkenningu og hvatningu?

Allir geta tilnefnt til verðlaunanna; foreldrar, ömmur og afar, starfsfólk SFS, aðrir borgarstarfsmenn, frístundamiðstöðvar, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar, skólahljómsveitir, grunnskólar, leikskólar, aðrar stofnanir og samtök. Við val á verðlaunahöfum verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka, svo og að fjölbreytt verkefni fái viðurkenningu. Þrjú verkefni sem skara fram úr verða verðlaunuð og fær starfsstaður viðurkenningarskjal og verðlaunagrip til eignar.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til 5. apríl og skal senda þær á netfangiðsfs@reykjavik.is.

Sjá eyðublað fyrir tilnefningu.

Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framsækið frístundastarf verða afhent á uppskeruhátíðinni Höfuð í bleyti sem haldin verður 16. maí 2019.

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt