Vinaball í Langó

 In Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Þróttheimar

Í kvöld, miðvikudaginn 29.nóvember ætlar hópur af nemendum í valfaginu viðburðarstjórnun og samskiptatækni að halda utan um Vinaball í Langholtsskóla. Öll skipulagning ballsins og framkvæmd er í höndum þessara nemenda sem hafa eytt síðustu dögum í að útbúa skreytingar, auglýsa og peppa viðburðinn. Nemendum skólans er boðið að taka með EINN vin á ballið. Miðinn á ballið kostar 200kr og munu gamlir nemendur úr skólanum stjórna tónlistinni og halda uppi stuðinu.
Ballið hefst kl 19:30 og stendur til 22:00. Það er Hawaii þema í takt hlýja veðrið sem hefur geisað síðustu daga.

Hlökkum til að sjá sem flesta unglinga og vini þeirra

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt