Gulahlíð
Frístundaheimilið Gulahlíð
Vesturhlíð 3
105 Reykjavík
Margrét, forstöðumaður: 695-5145
Elva, aðstoðarforstöðumaður: 664-7661
Anna Kristín, aðstoðarforstöðumaður: 664-7645
Kristín Hulda, aðstoðarforstöðumaður: 664-7664
Í Guluhlíð er starfrækt frístundaheimili fyrir nemendur í 1.-4. bekk í Klettaskóla. Hjá okkur opnar þegar skóladegi lýkur og lokar klukkan 17:00.
Við leggjum áherslu á að veita börnum einstaklingsmiðaða þjónustu í heimilislegu og öruggu umhverfi. Starfsmenn leggja ríka áherslu á að börnunum líði vel, skemmti sér og njóti sín. Einnig viljum við tryggja öryggi barnanna og veita þeim og foreldrum þeirra góða þjónustu. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu þar sem hverjum og einum er mætt á sínum forsendum og leggur starfsfólk metnað í að hafa markvisst, fjölbreytt og innihaldsríkt starf í boði á hverjum degi.
Leiðarljós Guluhlíðar:
Við leggjum mikið upp úr því að vera jákvæð og sveigjanleg með fagmennsku í forgrunn. Áhersla er lögð á Virðingu, Vináttu, Sjálfstyrkingu og Skemmtun í gegnum leik og starf. Í Guluhlíð er boðið upp á fjölbreyttar tómstundir sem mæta áhugasviði hvers og eins. Lagt er upp með að efla félagsþroska barna og að þeim líði vel.
Frístundamiðstöðin Kringlumýri
S: 664-7645