Samuel í heimsókn
Þessa vikuna höfum við verið svo heppin að hafa hann Samuel í heimsókn hjá okkur hér í Krakkakoti. Samuel er útivistargarpur Kringlumýrar en hann flakkar á milli frístundaheimila og heldur klúbba þar sem hann kennir börnunum um útivist, tálgun og margt fleira skemmtilegt.
Fyrripart vikunnar var Samuel með slöngvibyssu (slingshot) og kassa í íþróttasalnum en þar fengu krakkarnir að skjóta boltum úr slöngvibyssu í kassa sem var búið að stafla upp. Krakkarnir sóttu vel í það og skemmtu sér mjög vel.
Seinnipart vikunnar hefur Samuel verið með tálgun fyrir börnin í 2 – 4. bekk. Þar lærðu börnin aðferðir hvernig eigi að tálga, móta eitthvað flott úr því og pússa. Á fimmtudeginum var tálgun fyrir 2. og 3. bekk en í dag verður svo tálgað í 4. bekkjarfjöri. Krakkarnir sóttu mjög vel í tálgununa og finnst þetta vera mjög skemmtilegur klúbbur.
Seinna meir fær svo 1. bekkur að þjálfa sig í að tálga með smjörhnífum og sápu en það bíður betri tíma.