Öskudagurinn
Öskudagur er stór dagur í frístundastarfi víðsvegar. Sólbúar klæddu sig upp í búninga að venju í tilefni dagsins. Það voru allt frá ofurhetjum og til stjórnmálamanna sem gerðu sér glaðan dag í Sólbúum .
Kötturinn var ekki sleginn úr tunnunni í þetta skiptið en í stað þess var dansað í íþróttasal Breiðagerðisskóla. Hérna að neðan má sjá Sólbúa í öfugum setudans. Semsagt dansa sitjandi og standa svo upp um leið og tónlistin stoppar.
Myndbandið má sjá með því að klikka hér.
Recent Posts