Hrekkjavaka
Í þarseinustu viku var Hrekkjavakan haldin hátíðleg í Vogaseli. Börnin komu flest með búning með sér og fengu að skipta yfir í hann í Vogaseli. Starfsfólkið var einnig spennt fyrir hrekkjavöku og mættu í búning eða máluðu sig ógnvekjandi.
Við buðum upp á andlitsmálun fyrir þau börn sem vildu.
Síðan héldum við almennilegt hrekkjavökuball með tilheyrandi látum og skemmtilegheitum 🙂
Þeir sem voru ekki til í ball og læti gátu fengið að fara í Hogwarts að lita hrekkjavökumyndir.
Þetta var ótrúlega skemmtilegt og í endann fengu börnin nammiskál til að taka með sér heim. Heila, snáka og jarðarber 🙂
Recent Posts