Glens og gaman í Glaðheimum!

 In Glaðheimar

Heil og sæl kæru foreldrar og forráðamenn,
***English below***

Fyrstu dagarnir í sumarfrístund byrjuðu heldur betur vel! Sólin skein og æðislegt veður – fullkomið til að leika úti. Á fimmtudaginn tókum við strætó í Þjóðminjasafnið og fórum þar í ratleik. Börn og starfsfólk skemmtu sér konunglega. Þá var ferðinni heitið í Hjómskálagarðinn þar sem við borðuðum nesti, lékum okkur í leiktæjunum og klifruðum í klifurgrindinni. Snúningsdótið var mjög vinsælt og fengu sumir smá kennslu í hvernig snúningur hefur áhrif á jafnvægisskynið 🙂

Í dag breyttist dagskráin okkar vegna veikinda en það kom ekki að sök. Við erum svo heppin með hverfið okkar og að hafa Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í göngufæri. Við skelltum okkur því þangað í glampandi sól og blíðu. Þar heilsuðum við upp á dýrin, borðuðum nesti og lékum okkur í garðinum. Yndislegt alveg hreint!

Þetta var góð byrjun á góðu sumri! Við förum ánægð inn í helgina og hlökkum til næstu viku.

Góða helgi öllsömul!

***
Dear parents and guardians,

The first couple of days couldn’t have been better! The sun was shining and perfect weather for playing outside. Thursday we took a bust o the National Museum for orienteering. The children and staff had a wonderful time. We then went to Hjómskálagarðurinn where we had lunch, played on the playground and climbed on the climbing basin. A spinning-toy was very popular and some got a lesson in how spinning around can affect ones balance 🙂

Our program today changed due to illness, but we did not let that stop us. We are so lucky with our neighborhood and to have the Family Park and Zoo within walking distance. So we headed over there in fantastic weather. At the zoo we greeted the animals, and then we had our lunches and played in the park.

This was truly a good start for a good summer! We go happy in to the weekend and look forward to next week.
Have a good weekend everybody!

            

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt