Bleikur dagur

 In Forsíðu frétt, Frístundaheimili 6 - 9 ára, Laugarsel

Í dag er dagur bleiku slaufunnar og voru börnin mjög dugleg að mæta í bleiku!

Fyrstu vikur október hafa verið ljúfar í Laugarseli, starfið komið í ágætis horf. Við höfum haft útiveru, listasmiðju, hrekkjavökuföndur og ýmislegt skemmtilegt.

Í næstu viku verður svo heill dagur hjá okkur, 18.október, þar sem það eru foreldraviðtöl í skólanum. Dagsskrá verður auglýst síðar. Fimmtudag, föstudag og mánudag (19.. 20. og 23.október) er vetrarfrí í skólanum og lokað í Laugarseli.

Við minnum svo á facebooksíðu fyrir foreldra þar sem við setjum myndir, myndbönd og ýmislegt fleira og hvetjum við ykkur að biðja um aðgang og kíkja á færslurnar okkar 🙂 https://www.facebook.com/groups/Laugarsel1718/

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt