Félagsmiðstöðvadagurinn í Laugó

 In Forsíðu frétt, Laugó

Miðvikudaginn 1. nóvember verður Félagsmiðstöðvadagurinn haldinn hátíðlegur um allt land. Hlutverk félagsmiðstöðvadagsins er að opna félagsmiðstöðvarnar og kynna það glæsilega starf sem þar fer fram.

Opið hús verður kl 17:00 – 19:00 og munu bæði starfsfólk og ungmenni kynna starfið sem fram fer í Laugó.

Í Laugó koma ungmenni úr 5. og 6 bekk í Laugarnesskóla og 7.-10. bekk í Laugarlækjaskóla og hvetjum við alla fjölskyldumeðlimi til að koma í heimsókn til okkar og skoða starfið og fá sér léttar veitingar.

Hlökkum til að sjá sem flesta,

Starfsfólk Laugó

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt