Heilir dagar í október

 In Forsíðu frétt, Frístundaheimili 6 - 9 ára, Laugarsel

Nú hafa fyrstu heilu dagarnir í Laugarseli liðið og gengu vel. Það var mikil skráning og þar af leiðandi mikið stuð!

Miðvikudaginn 18.október var foreldraviðtalsdagur, svo við vorum heima við allan daginn. En það stoppaði ekki fjörið, við vorum með skylmó, bogfimi, tarzan leik, föndur, spil, bíó og þess háttar skemmtilegt! Veðrið var ekki að leika með okkur þennan daginn, en við gerðum það besta úr því og nýttum því íþróttasal skólans í bogfimi og tarzan leik.

Þriðjudaginn 24.október var ekki síðri, þá var kíkt á aparóló, sem er rólóinn við Rauðalæk. Eftir hádegi var svo alls konar smiðjur í boði, eins og föndur, spil og tölvustofan var í boði.


Minnum á að skráning er hafin fyrir næsta heila dag, sem er 20.nóvember, á Völu frístund.

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt