Fyrsti snjódagur vetrarins

 In Forsíðu frétt, Frístundaheimili 6 - 9 ára, Laugarsel

Jæja, nú er snjórinn kominn, krökkunum til mikillar ánægju!

Veðrið vakti mikla lukku og var mikil stemming úti í snjónum. Það var verið að gera snjókarla, snjóboltakast og við tókum rassaþoturnar okkar úr geymslu og voru þær mjög vinsælar!

Einnig voru hugmyndir úr hugmyndakassanum framkvæmdar í vikunni. Það var kosið um tvær hugmyndir sem komu frá krökkunum, þær voru að hafa tölvuklúbb og að hafa loom. Tölvuklúbburinn var á miðvikudaginn og loom var í dag (föstudag).

Við minnum á skráningu fyrir heilan dag 20.nóvember á frístundavefnum, en skráningu lýkur mánudaginn 13.nóvember að miðnætti.

Góða helgi og njótið snjódagana framundan 🙂

Hér koma myndir frá snjódeginum, tölvuklúbbinum og loom.

 SNJÓFJÖR Í LAUGARSELI 😀

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt
Hverfið mitt logo