Nýir klúbbar og spennandi dagskrá í janúar

 In Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Laugó

Starfsmenn Laugó óska ykkur öllum gleðilegs nýs ár ár sama tíma og við þökkum fyrir samskiptin og góðar stundir á árinu 2019.

Fyrsta dagskrá ársins 2020 er mætt og má finna hér. Það er margt framundan í janúar í Laugó en hæst ber að nefna Sexuball þar sem allar félagsmiðstöðvar í Laugardals-og háaleitishverfi koma saman á stóru balli. Þetta árið verður ballið haldið í sal Laugalækjarskóla og verður gaman að fá fjölda unglinga til okkar.

Nýjir klúbbar munu hefjast í mánuðnum eins og handrita- og stuttmyndaklúbbur auk þess sem eldri klúbbar á borð við LAN klúbbur, Söngklúbbur og ljósmyndaklúbbur fara aftur af stað, svo eitthvað sé nefnt.

Dagskrá fyrir miðstig er einnig mætt og er marg spennandi í boði. Líkt og síðasta haust verðum við með smiðjur fyrir 5. og 6. bekk á föstudögum.
Skráning fer núna fram á www.skraning.fristund.is, og fer skráning fram í byrjun hvers mánaðar.

Smiðjurnar í Janúar eru eftirfarandi:
17. janúar – Jógasmiðja
Ungmenni fá smá innsýn í jóga og hugleiðslu á nýju ári. Einfaldar æfingar og góð samvera í félagsmiðstöðinni.

24. janúar – Hollt og gott smiðja
Gerum hollt nammi í félagsmiðstöðinni. Kynnum ungmennum fyrir leiðum til að gera góðgæti hollara og að velja betri kosti.

31. janúar – Leikjasmiðja
Gerum hollt nammi í félagsmiðstöðinni. Kynnum ungmennum fyrir leiðum til að gera góðgæti hollara og að velja betri kosti.

Hlökkum til ársins 2020 með ykkur og ætlum okkur stóra hluti á þessu flotta ári.
Mynd frá Piparkökuhúsasmiðju hjá 5. og 6. bekk í desember.

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt