Sumarnámskeið vika 3 í Laugarseli
Í þessari viku var farið í Grasagarðinn, í Elliðárdalinn, í Heiðmörk og tvisvar í Kópavoginn, fyrst í sund og á Rútstún og svo á Náttúrufræðistofu Kópavogs og á ærslabelginn þar fyrir utan. Það var mjög gaman að njóta náttúrunnar, en í Grasagarðinum fengum við bakpoka með alls konar leikjum og þess háttar, í Elliðárdalnum lékum við okkur í klettum og trjám ásamt því að sjá fullt af kanínum og í Heiðmörk vorum við að gróðursetja tré í laut Kringlumýrar, lékum okkur í Furulundi og grilluðum pulsur.
Hér eru myndir frá vikunni