Tómstundafræðingur til liðs við Glaðheima
Frístundaheimili borgarinnar hafa fengið fjármagn til þess að ráða til sín tómstundafræðinga til þess að sinna samstarfsverkefni með grunnskólum borgarinnar. Við í Glaðheimum vorum svo heppin að fá Íunni Eir Gunnarsdóttir til liðs við okkur en hún kláraði tómstunda- og félagsmálafræði í Háskóla Íslands 2018. Íunn vinnur líka sem fótboltaþjálfari og hefur gert það síðastliðin 7 ár hjá KR og Þór. Hún kemur því til með að bæði styrkja faglega þekkingu starfsfólk Glaðheima á vináttu og samskiptafærni og koma inn með kraft og gleði í starfið. Íunn er samhliða vinnu í Glaðheimum í framhaldsnámi við Háskóla Íslands í tómstunda- og félagsmálafræði og er því aðeins í 45% vinnu hjá okkur.
Íunn mun standa fyrir hópastarfi í Glaðheimum fyrir börn í 1. og 2. bekk þar sem hún leggur áherslu á jákvæð samskipti og vináttufærni. Hóparnir verða sóttir í Langholtsskóla klukkutíma áður en hefðbundnu skólastarfi líkur og mæta því fyrr í Glaðheima þá daga. Þar verður skipulögð dagskrá sem snýst um að gefa krökkunum tækifæri til þess að æfa sig í félagslegum aðstæðum, setja sig í spor annara og láta reyna á þægindarammann í öruggu umhverfi. Hóparnir eru valdir í samstarfi við kennara skólans og miðað er við að allir fái að taka þátt einu sinni í 1. eða 2. bekk. Enginn er þó sendur í hópastarfið nema foreldrar hafi gefið leyfi fyrir því.
Vinátta er mjög mikilvæg þroska barna, eykur vellíðan þeirra og lítum við sem svo á að þetta verkefni sé forvarnarverkefni gegn einelti og einsemd. Í frístundastarfi gefst tími til að leggja áherslu á að eiga í jákvæðum samskiptum við jafnaldra á glaðlegan og skemmtilegan máta. Hópurinn fer í leiki sem snúast um samskipti, að finna eigin þægindaramma og láta reyna á hann og að finna traust í jafningjahóp. Við hlökkum mikið til að keyra þetta verkefni af stað og foreldrar þeirra barna sem við bjóðum í fyrsta hópinn munu heyra frá okkur á næstu vikum.
p.s. Myndin er af Markúsi Bjarnasyni og börnunum í Glaðheimum, Markús er flakkari hjá frístundaheimilum Kringlumýrar sem fer á milli frístundaheimila og kynnir börnunum fyrir tónlist á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt. Hann er hjá okkur þessa vikuna.