Fræðslufundur fyrir foreldra og forsjáraðila með Heimili og skóla 20. mars n.k.
Mánudaginn 20. mars kl. 19:45-21:00 verður fræðslufundur fyrir foreldra og forsjáraðila með Heimili og skóla.
Við vitum að mikilvægi samvinnu foreldra í skólastarfinu er óumdeilt. Samheldni og samstarf foreldra hefur jákvæð áhrif á velferð barna; skólabrag og líðan nemenda, foreldra og kennara, svo ekki sé minnst á námsárangur. En hvernig get ég sem foreldri lagt mitt að mörkum til að auka vellíðan og farsæld barna í mínu nærumhverfi og skiptir samvinna foreldra máli þegar kemur að farsæld barnanna okkar?
Við hvetjum öll til að mæta á fundinn.
Mikilvægt er að skrá sig ef horfa á í streymi: https://forms.gle/bMRYuV7ym1icqZmN7
Nýlegar færslur