Miðstig byrjar í næstu viku
Í næstu viku hefst loks starf miðstigs í Buskanum þar sem 5. bekkur mætir til okkar á mánudaginn og 6. og 7. bekkur mæta á miðvikudaginn. Við leggjum mikla áherslu á að skapa jákvætt andrúmsloft og öruggt umhverfi þar sem allir geti tekið í fjölbreyttri dagskrá Buskans.
Fyrir komandi vetur höfum við sett okkur það markmið að auka aðkomu krakkana sjálfra að dagskrárgerð síns starfs. Þar af leiðandi hefur ekki verið gefin út dagskrá miðstigs fyrir septembermánuð ennþá þar sem starfsmenn Buskans munu fara í dagskrárgerð með krökkunum á fyrstu opnun þeirra. Við hlökkum mikið til að vinna með krökkunum að þessu verkefni og fá þau til að hjálpa okkur við að gera starf Buskans ennþá betra.
Bestu kveðjur,
Starfsfólk Buskans.