Öskudagsfjör

 In Forsíðu frétt, Frístundaheimili 6 - 9 ára, Gulahlíð

Það var svo sannarlega mikið um að vera í Guluhlíð á öskudaginn. Krakkarnir mættu hress og kát í búningum snemma um morguninn tilbúin í skemmtun dagsins. Stór hópur gerði sér ferð í Kringluna um morguninn að syngja fyrir nammi, á meðan aðrir skelltu sér í sund í Kópavogi. Boðið var upp á pizzu í hádeginu fyrir börn og starfsmenn.

Eftir hádegi var frítt í öskudagsbíó í Kringlunni. Mörg börn vildu skella sér í bíó en þau sem vildu vera í Guluhlíð horfðu á bíómynd þar og poppuðu popp. Takk fyrir æðislegan dag 🙂

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt