Vetrarstarfið í fullu fjöri

 In Forsíðu frétt, Frístundaheimili 6 - 9 ára, Gulahlíð

Vetrarstarf Guluhlíðar er komið á fullt skrið og börn & starfsfólk glöð með það. Eftir smá töf hafa íþróttatímarnir á mánudögum loksins komið aftur og krakkarnir njóta þess að hlaupa um, ærslast og hoppa á trampolíninu. Íþróttirnar eru nú með fastan tíma alla mánudaga frá kl 14-15 í íþróttasal Klettaskóla. Starfsfólkið labbar þá yfir frá Guluhlíð með sínu barni og gera sér glaðan dag í íþróttasalnum. Nokkur afmæli hafa verið haldin í Guluhlíð síðan veturinn byrjaði og hefur Gula húsið verið nýtt til þess að halda veislur með pompi og prakt. Sum börnin hafa mætt með kökur og alls kyns góðgæti með sér hinum til mikillar gleði 🙂

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt