Tónabær verður rafræn félagsmiðstöð í samkomubanninu

 In Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Tónabær

Þessir fordæmalausu tímar kalla á ítrekaða endurskipulagningu og endurhugsun. Á miðnætti í gær fór af stað hert samkomubann, þar koma fram ný tilmæli sem ná til eldri nemenda. Við viljum taka samfélagslega ábyrgð og þurfum því að taka ákvörðun um að loka Tónabæ fyrir almennum opnunum. Við verðum þó enn til staðar fyrir unglingana. Tónabær verður alfarið að rafrænni félagsmiðstöð frá og með deginum í dag.

Við höfum verið að prófa okkur áfram með það og fá hugmyndir. Undanfarna daga höfum við sett í gang áskoranir þar sem ungmennin senda okkur myndir eða myndbönd sem tengjast keppni hvers dags, svo sem listakeppni, TikTok keppni og bolakeppni. Eins og staðan er núna mun mest fara fram á samfélagsmiðlinum Instagram, þar sem má finna okkur undir notendanafninu: tonabaer.

Dagskrá vikunnar í rafrænum Tónabæ er því eftirfarandi: (ath. dagskráin er enn í vinnslu og er því drög hér að neðan)

Miðvikudagur 25.mars
Áskorun dagsins: Bolaáskorun

19:45
Blind tasting

20:30
Giskaðu á lagið

 

Fimmtudagur 26. mars.
Áskorun dagsins: Ljósmyndakeppni (Mynd sem lýsir deginum þínum

19:45
Ægir og Hildur Elísa á Instagram Live

 

Föstudagur 27. mars
Áskorun dagsins: Moppuáskorun

 

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt