Umsóknir á frístundaheimili veturinn 2019-2020

 In Forsíðu frétt, Frístundaheimili 6 - 9 ára, Glaðheimar

Opnað verður fyrir umsóknir á frístundaheimili borgarinnar frá og með 1. mars næstkomandi kl 8:20 fyrir börn sem verða í 2.-4. bekk á næsta skólaári. Skráningin fer fram á Rafrænni Reykjavík og minnum við á að það þurfa allir að sækja um í frístundaheimili óski þau eftir að börnin þeirra geti komið næsta vetur þar sem skráning færist ekki á milli ára. Innskráningarferli borgarinnar er með sama fyrirkomulagi og það var fyrir þennan vetur en þá eru umsóknir fyrir 1. bekk í forgangi, þar á eftir er tekið inn börn í 2.bekk, því næst 3. bekk og að lokum 4. bekk. Tekið er inn eftir því sem starfsfólk er ráðið inn og er þá miðað við að hver starfsmaður sinni 14-16 börnum eftir því hvað þau eru gömul.  Ef einhver lendir í vandræðum með ferlið er sjálfsagt að hafa samband við okkur eða hafa samband við þjónustuver reykjavíkurborgar í síma 411-1111.

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt