Félagmiðstöðvardagurin haldinn hátíðlegur í Laugó
Núna næsta miðvikudag ætlum við í félagsmiðstöðinni Laugó að halda upp á Félagsmiðstöðvardaginn en hann er haldinn ár hvert í nóvember. Við bregðum á það ráð að bjóða öllum foreldrum, forráðamönnum og öðrum sem hafa áhuga á að koma og kíkja á það sem félagsmiðstöðin hefur uppá að bjóða. Nemendur úr Laugalækjarskóla koma og verða með atriði fyrir okkur ásamt því að við bjóðum upp á kaffi, kökur og aðrar léttar veitingar.
Opið verður frá 18-21 og vonumst við til að sjá sem flesta.
Recent Posts