Brandar á Barnamenningarhátíð
Um þessar mundir erum við að safna bröndurum frá krökkunum í Laugarseli sem á að fara í Brandarabók Kringlumýri 2019. Þetta verkefni er unnið í tilefni af Barnamenningarhátíð og eru öll frístundaheimili Kringlumýri (8 talsins) að koma að þessari bók.
Einnig er teiknisamkeppni þar sem börnin teikna mynd sem fer í pott og myndin sem verður dregin verður forsíða Brandarabókarinnar. Þemað í ár er hlátur.
Að lokum verður útgáfupartý 12.apríl þar sem boðið verður upp á veitingar, lesið verður úr Brandarabókinni og foreldrar eru velkomnir að mæta og taka þátt.
Recent Posts