Rósaball Þróttheima og Langholtsskóla
Starf félagsmiðstöðvarinnar Þróttheima hefst með Rósaballi unglingadeildar í dag miðvikudaginn 28.ágúst. Á ballinu bjóða nemendur 10.bekkjar nýja 8.bekkinga velkomna í unglingadeild skólans. Ballið er frá 20:00-22:00 og það er ókeypis inn. Sjoppa verður á staðnum og verði stillt í hóf. Á ballinu verða bæði kennarar frá skólanum ásamt starfsfólki félagsmiðstöðvarinnar.
Nemendur skólans sjá um böllin, skreyta salinn, gera myndavegg, halda utan um sjoppuna og sinna öðrum hlutverkum á meðan á ballinu stendur. Við erum með gríðarlega öfluga unglingadeild sem tekur að sér fjölbreytt verkefni og sinnir þeim af fagmennsku og á mikið hrós skilið.
Eftir ballið hvetjum við unglinga til að halda beint heim enda hefðbundinn skóladagur á morgun.
Seinna í vikunni munum við senda út almennan upplýsingarpóst með helstu opnunartímum, dagskrá og kynningu á starfsfólki félagsmiðstöðvarinnar.