Þriðja vikan í Laugarseli í máli og myndum
Við byrjuðum vikuna 19.-23. júní í Laugarseli á að gróðursetja litla plöntu sem börnin taka svo heim núna í lok vikunnar. Þau efngu að velja um að gróðursetja basiliku, myntu eða tvær tegundir af sumarblómum. Myntan var vinsælust en fjölbreytileikin skein þó líka í gegn í valinu. Við fengum svo vætusama og ævintýralega daga í Heiðmörk, grasagarinum og fjölskyldu og húsdýragarðinum.
Á fimmtudaginn fórum við svo í Breiðholtslaugina og lékum okkur á leikvellinum við hliðina á lauginni. Krakkarnir höfðu mjög gaman af rennibrautunum þar sem bjóða uppá mikinn hraða og mikið fjör.
Á föstudeginum fórum við í heimsókn í frístundaheimilið Álftabæ og horfðum á brúðubílinn eftir hádegi.