Fyrstu dagarnir í Laugarseli

 In Forsíðu frétt, Frístundaheimili 6 - 9 ára, Laugarsel

Nú er 1.bekkur mættur í Laugarsel og hefur gengið mjög vel að taka á móti þeim!

Þetta er mikill fjöldi og þegar 2.bekkur bætist við frá 1.september verðum við yfir 200, mikið fjör!

Fyrsti dagurinn, sem var miðvikudagurinn 26.ágúst fór í að kynna Laugarsel fyrir 1.bekk, þá voru farnar fimm stöðvar og farið yfir skipulag og reglur Laugarsels.

Annar dagurinn var aðeins öðruvísi en má venjast vegna fráfalls starfsmanns í skólanum sem var kvaddur þann dag og því var skertur dagur óvænt í skólanum og aðeins öðruvísi skipuleg en má venjast. Dagurinn gekk samt vel og allir glaðir!

Þriðji dagurinn er svo fyrsti eðlilegi dagurinn í Laugarsel þar sem var meðal annars boðið upp á klúbb inn í skóla, en það var just dance í matsal, sem var mjög vinsælt!

Hér má sjá myndir frá þessum dögum 🙂

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt