Vikan í Dalheimum
Þá er enn önnur viðburðarrík vika að baki í Dalheimum og ný að hefjast. Í vikunni sem leið eignuðumst við borðtennisborð sem hefur heldur betur vakið kátinu meða barna og starfsfólks. Við sjáum fram á góðar stundir í borðtennismóti í vetur. Baksturklúbbur með Patriciu var einnig vinsæll og fljótur að fyllast. Því var þó ekki að örvænta, allir fengu að gæða sér á gómsætri afurðinni. Þá fékk Alex áhugasama með sér í lið við að mála Warhammer karla. Warhammer er teningaspil sem reynir á samvinnu, úrræðasemi og ólíkt hefðbundnum borðspilum færast karlarnir ekki eftir fletum, heldur frjálst um leikborðið.
Á föstudaginn var skipulagsdagur í Langholtsskóla og að því tilefni skelltum við okkur í sund og heita potta í Laugardalnum.
Við leyfum nokkrum myndum að fylgja með:
Warhammer karl
Borðtennis
Útivera
Listamenn
Popp og bíó
Bingó!