Vel heppnaður fundur um snjalltækjanotkun barna og ungmenna
Foreldraþorpið stóð nýlega fyrir vel heppnuðum fundi sem hafði yfirskriftina Snjalltækjanotkun barna – Hver er staðan og hvert stefnum við? – Fundurinn var þáttur í forvarnar- og heilsueflingu í hverfinu okkar.
Það er óhætt að segja að fundurinn hafi heppnast vel þar sem að yfir 260 foreldrar mættu í Laugardalshöllina þann 3. maí og enn fleiri fylgdust með heima en fundinum var streymt í beinni. Alls voru 7 erindi flutt á fundinum frá hinum ýmsu aðilum sem sendu foreldra heim með mikilvæga hvatningu og verkfæri um hvernig eigi að takast á við þennan vanda. Á fundinum var einnig rætt um niðurstöður rannsókna um hagi og líðan barna í hverfinu þar sem kom í ljós að minni svefn, aukinn kvíðaeinkenni og þunglyndi sérstaklega hjá stúlkum eru vandmál sem eru algeng í dag.
Það er því ljóst að nærsamfélagið okkar þ.e. heimili – skóli og frítímastarf þarf að sameinast í auknu samstarfi í forvörnum og heilsueflingu. Næsti fundur Foreldraþorpsins verður í september þar sem fjallað verður um sjálfsmynd – kvíða og þunglyndi – einsemd og áhyggjur hjá börnum og unglingum. Þar verður einnig rætt um hvernig foreldrar geta sameinast í forvörnum.
Fyrir þá sem misstu af fundinum þá er hægt að horfa á fundinn í fullri lengd inni á vef Netsamfélagsins eða með því að smella hér. Einnig er að finna frétt um fundinn á fréttavef Rúv, hér.