Skráning hafin í sumarsmiðjur 10-12 ára
Nú í morgun hófst skráning í sumarsmiðjur 10-12 ára barna í Laugardal, Háaleiti og Bústöðum. Mælum við eindregið með því að foreldrar og forráðamenn skrái börnin inn sem fyrst en síðasta sumar komust færri að en vildu.
Skráning fer fram hér
Foreldrum er einnig bent á að opnanir verða í félagsmiðstöðvum fyrir nemendur sem voru að ljúka 7. bekk. Skráning er ekki nauðsynleg heldur er frjálst mæta á auglýstum opnunartíma.
Nánari dagskrá má sjá á eftirfarandi myndum en einnig hér:
Recent Posts