Sumarstarf Laugarsels
Síðasti dagur vetrarstarfs í Laugarseli þennan veturinn er föstudagurinn 2. júní næstkomandi. Mánudagurinn 5. júní er annar í hvítasunnu og því allt lokað þá. Þriðjudagurinn er starfsdagur Laugarsels, á miðvikudeginum eru skólaslit og á fimmtudeginum hefjast sumarnámskeið frístundaheimilanna í Kringlumýri. Laugarsel stendur fyrir sumarnámskeiðum fyrir börn sem voru að klára 1. og 2. bekk í Laugarnesskóla, námskeiðin verða eftirfarandi vikur:
8.-9. júní
12.-16. júní
19.-23. júní
26.-30. júní
3.-7. júlí
sumarfrí frá 8. júlí til 8. ágúst
8.-11. ágúst
14.-18. ágúst
Recent Posts