Buskasigur á Danskeppni Samfés
Danskeppni Samfés fór fram í Digranesi síðastliðið föstudagskvöld og var fjöldi keppenda skráður til leiks hvaðanæva að af landinu. Keppendur eru 13 – 16 ára og keppt bæði í einstklingskeppni og hópakeppni. Helena Ósk og Steinunn Glóey tóku þátt fyrir hönd Buskans en þær kepptu báðar í einstaklingskeppni og hópakeppninni með hópnum TEAM OF 7. Þær stóðu sig frábærlega og uppskáru sigur í báðum flokkum.
Í einstaklingskeppninni sigraði Helena Ósk og Steinunn Glóey var í þriðja sæti. Þar að auki bar hópurinn þeirra, TEAM OF 7 sigur úr býtum í hópakeppninni. Við óskum þeim báðum innilega til hamingju með þennan stórglæsilega árangur.
Horfa má á upptöku af danskeppninni inni á vefspilara UngRÚV: http://ungruv.spilari.ruv.is/