Ólympíuhátíð Kringlumýri 2019
Hin árlega Ólympíuhátíð Kringumýrar var haldin 20.júní s.l. með pomp og prakt!
Í þetta sinn var hátíðin haldin á skólalóð Laugarnesskóla, við frístundaheimilið Laugarsel.
Hvert frístundaheimili hefur sinn lit en þeir eru;
Krakkakot – gulur, Laugarsel – rauður, Dalheimar – grænn, Álftabær – blár, Sólbúar – svartur, Neðsta Land – hvítur, Glaðheimar – fjólublár og Vogasel – bleikur.
Byrjað var á skrúðgöngu um lóðina, þar bættist lukkudýrið Blossi með í för og leiddi gönguna!
Greinar leikanna voru eftirfarandi:
Þrautabraut í kastalanum, flöskuflipp, angry birds, vító, stinger og skó-rólu-spark.
Í lokin var svo farið í skotbolta og loks kom ísbíllinn og allir fengu ís.
Hér má sjá myndir frá hátíðinni.