Apríl í Þróttheimum

 In Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Forsíðu frétt, Þróttheimar

Núna er vorið að fara mæta á svæðið og við í Þróttheimum tökum því allavegana fagnandi eftir að hafa verið veðurteppt á okkar eigin bílastæði nokkrum sinnum í mars. Það er nóg fram undan hjá okkur í apríl og byrjar mánuðurinn á sannkallaðri sprengju þar sem árshátíð unglingana verður haldin hátíðleg þann 6 apríl. Gistinótt og samfestingurinn er einnig í þessum mánuði ásamt fullt af afþreyingu fyrir unglingana þess á milli. Miðstigið ætlar að skella í páskaeggjaleit og verður einnig Tie dye og Frisbee golf svona í tilefni þess að sumardagurinn fyrsti er vikuna á undan. Við vekjum athygli á því að við neyðumst til að flýta opnun hjá 7.bekk tvisvar sinnum þann 1.apríl og svo aftur 29.apríl og verður opið frá 14:30-16:30 fyrir nemendur þessa daga. Við elskum að heyra hugmyndir frá nemendum og aðstandendum þeirra þannig ef þið lumið á skemmtilegri hugmynd til að setja á dagskránna ekki hika við að senda línu á throttheimar@rvkfri.is eða bara hringja í okkur í síma 6955066. Njótið helgarinnar og sjáumst hress í Þróttheimum.

Bestu kveðjur

Starfsfólk Þróttheima

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt