Páskafrí framundan

 In Dalheimar, Forsíðu frétt, Frístundaheimili 6 - 9 ára

Í næstu viku, 12.-13.apríl, verða PáskaDaleimar, en skráningu fyrir þá viku lauk 4.apríl. Það er alltaf lokað í Dalheimum á rauðum dögum, sem þýðir að 14.,15.,18. og 21.apríl, sem er sumardagurinn fyrsti, verður lokað. Þá er lengd viðvera 19.apríl fyrir börn í Laugarnesskóla, en venjulegur dagur hjá börnum í Langholtsskóla.

Við reynum að vera dugleg að sýna frá því sem á daga okkar drífur í Dalheimum á instagraminu okkar Dalheimar. Þar setjum við líka alltaf klúbbaplan vikunnar.

Nú er farið að vora og því ætlum við að leggja meiri áherslu á útiveru. Við mælum með að fylgjast með veðurfregnum og senda börnin klædd eftir veðri. Við byrjuðum með leik dagsins sem er í útiverunni hjá okkur og erum alltaf að reyna að hafa eitthvað skemmtilegt í útiverunni okkar.

Skráning fyrir næsta skólaár er hafin og er hér.

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt