Verndum börnin og unglingana í sumar

 In Askja, Buskinn, Bústaðir, Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Forsíðu frétt, Hofið, Laugó, Tónabær, Þróttheimar

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur vill minna foreldra og þá sem fara með forsjá barna á mikilvægi aðhalds yfir sumartímann.

Forvarnarhlutverk foreldra og forsjáraðila mikilvægt

english/enska – polski/pólska – کوردی/kúrdíska – عربي/arabíska – українська/úkraínska

Þá er enn einu skólaárinu að ljúka og sumarið blasir við. Það eru ýmsar hættur sem geta fylgt ævintýrum sumarsins þegar börn og unglingar hafa jafnan aukinn frítíma. Af því tilefni viljum við brýna foreldra/forsjáraðila leik- og grunnskólabarna í Reykjavík í mikilvægu forvarnarhlutverki sínu. Mikilvægt er að foreldrar og aðrir umönnunaraðilar taki höndum saman og veiti stuðning og hvatningu til félagslegrar virkni í öruggu umhverfi. Góður árangur í heilsueflingar- og forvarnarstarfi síðustu áratuga hefur meðal annars náðst með samstöðu foreldra.

Rannsóknir hafa sýnt fram á að ákveðnir þættir vernda börn og unglinga gegn áhættuhegðun. Foreldrar leikskólabarna og barna í yngri bekkjum grunnskóla eru hvattir til að kynna sér þessa verndandi þætti, ekki síður en foreldrar unglinga. Rannsóknir þessar hafa sýnt fram á að ef foreldrar tileinka sér þessi atriði og taka virkan þátt í foreldrasamstarfi, þá eru þeir ekki aðeins að minnka líkurnar á áhættuhegðun hjá sínu barni heldur eru þeir að hafa jákvæð áhrif á allan barnahópinn í nærsamfélaginu.

Hér viljum við benda á mikilvæga verndandi þætti:

  1. Samvera foreldra og barna.
  2. Börn fái nægan svefn.
  3. Foreldrar sýni umhyggju og setji skýr mörk.
  4. Foreldrar þekki vini barna sinna og foreldra þeirra.
  5. Börn taki þátt í skipulögðu frístundastarfi.
  6. Lögbundinn útivistartími sé virtur.
  7. Skýr afstaða foreldra gegn neyslu barna og unglinga á áfengi, vímuefnum, tóbaki, nikótínpúðum, rafrettum og koffíndrykkjum.
  8. Foreldrar leyfi ekki eftirlitslaus partý.
  9. Samstarf, traust og þátttaka í foreldrastarfi, t.d. bekkjarsamningum, foreldraráðum og foreldrarölti.

Þetta eru þættir sem foreldrar þurfa að hafa í heiðri í uppeldi barna á öllum aldri.

Rannsóknir undanfarinna ára hafa sýnt að færri börn meta andlega heilsu sína góða eða mjög góða. Börnum fjölgar sem telja sig ekki fá nægan svefn og mikilvægt er að fylgja eftir reglum og koma sér saman um viðmið um snjalltækja- og tölvunotkun barna. Það er sammerkt öllum samfélagsmiðlum að aldurstakmark er að barn sé að minnsta kosti 13 ára. Mikilvægt er að virða þau aldurstakmörk og koma þannig í veg fyrir að börnin okkar séu að sjá eða upplifa eitthvað sem gæti haft slæm áhrif á þau. Leyfum börnum á öllum aldri að taka þátt í ævintýrum sumarsins með okkur, verum með þeim, ræðum við þau og takmörkum skjánotkun.

Undanfarin sumur hefur borið á því að unglingar sem eru að byrja í framhaldsskóla að hausti hittist í eftirlitslausum partýum, s.s. á útivistarsvæðum í Reykjavík og nágrenni. Athygli er vakin á því að þessir viðburðir hafa ekki verið á vegum framhaldsskólanna. Borið hefur á talsverðri áfengisdrykkju á þessum viðburðum og eru foreldrar hvattir til þess að vera vakandi fyrir þessu. Mikilvægt er að sporna sem lengst við því að ungmennin okkar byrji að neyta áfengis eða annarra vímuefna.

Með verndandi þættina að leiðarljósi getum við í sameiningu tekist á við stórar áskoranir með góðum árangri. Ræðum þessi mál við börnin, vini barnanna og foreldra þeirra og leggjum okkar af mörkum við að auka farsæld barna.

Með sumarkveðju,

lýðheilsu- og forvarnateymi skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur

Recent Posts
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt